Ögrandi leiksvæði fyrir börn í Gerðin

Ögrandi leiksvæði fyrir börn í Gerðin

Hvað viltu láta gera? Setja upp stórt, áhugavert, skemmtilegt og ögrandi leiksvæði fyrir eldri börn/ungmenni í Gerðin, t.d. við skóginn hjá Bjarkarhlíð. Þar eru fyrir nokkur leiktæki fyrir eldri krakka en þau eru í slæmu ástandi og óaðlagandi. Bæta mætti nýjum leiktækjum við eða setja upp opna og ögrandi kastala/þrautabraut. Jafnvel setja kastala/þrautabraut úr náttúrulegum efnivið í skóginn eða tengja það skóginum Hvers vegna viltu láta gera það? Aðlagandi leikssvæði fyrir eldri börn eru af skornum skammti í hverfinu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Það bárust inn nokkrar hugmyndir í hugmyndasöfnun sem eru áþekkar og snúa að þessu sama svæði og var þín hugmynd ein af þeim. Þessar hugmyndir voru sameinaðar í eina hugmynd sem ber heitið "Ögrandi leiksvæði og áningarstaður í Gerðin" Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information