Sundlaug í Seljahverfi
Í Seljahverfi er gott svæði í kringum sundlaugina við Ölduselsskóla þar sem væri lítið mál að bæta við stærri/dýpri sundlaug og jafnvel líkamsrækt í tengslum við laugina. Gæti nýst bæði skólanum til kennslu sem og íbúum Seljahverfis. Alveg grundvöllur fyrir annarri laug í Breiðholtinu, þetta er það fjölmennt hverfi (ef þetta væri t.d.bær úti á landi væri ekki spurning að það væri góð laug í þetta fjölmennu byggðarsvæði)
Miklir möguleikar eru varðandi sundlaugina við Ölduselsskóla, þar væri hægt að vera með heita potta, opið á kvöldin, og bæta við íþróttatækjum, brennslutækjum t.d ásamt gufubaði. Mjög margir íbúar í Seljahverfi sem myndu nýta sér þessa aðstöðu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation