Hvað viltu láta gera? Tengja saman hjólastíga á Laugavegi og Sæbraut Hvers vegna viltu láta gera það? Það er flottur hjólastígur frá Grafarvogi að Fíladelfíu en eftir það er ekki annað í boði en að hjóla á götunni. Ef það væri hægt að komast með góðu móti á Sæbraut þá myndi það létta mörgum lífið.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation